Augliti-til-auglitis

Augliti-til-auglitis

Hið hraða og tæknivædda nútímasamfélag hefur alið af sér vaxandi vandamál sem einstaklingar finna á eigin skinni, eins og í formi einmanaleika, skautunar og ótta. Tengsl í gegnum skjá eru ekki þau sömu og milliliðalaus tengsl við aðra manneskju. Augnsamband næst til dæmis ekki i gegnum skjá, sem endurspeglar takmarkanir skjátækninnar samanborið við bein samskipti. Það er mikilvægt fyrir fólk að sjá aðra og sjást; slík samskipti eru áhrifaríkust augliti-til-auglitis.

Á UT-messunni í Hörpu, laugardaginn 7. febrúar, gefst gestum kostur á að eiga í 60 sekúndna augnsambandi við aðra manneskju. Gjörningurinn er ætlaður til að minna fólk á mikilvægi beinna samskipta fyrir mannleg tengsl í stafrænum heimi.

Scroll to Top