Mannleg tengsl í stafrænum heimi

Mannleg tengsl í stafrænum heimi

Ég, ásamt nokkrum nemendum mínum í félagsfræði við Háskóla Íslands, gáfum gestum á Vísindavöku Rannís kost á að setjast auglitis-til-auglitis með okkur í þögn í 60 sekúndur. Uppátækið, sem var til að minna fólk á mikilvægi beinna mannlegra samskipta í sífellt stafrænni heimi mæltist vel fyrir en yfir 100 gestir tóku áskoruninni. Upplifun þátttakenda var fjölbreytt. Sumum fannst þetta skrítið og krefjandi, flestum þótti þetta skemmtilegt, og enn öðrum þótti þetta róandi. Það sem var þó mikilvægast var að þátttakendur upplifðu sterk mannleg tengsl og umhyggju, þar sem þeir bæði sáu aðra og sáust af öðrum – sem er eitthvað sem gerist síður í skjáheimum þar sem augnsamband næst ekki í gegnum skjá. Bein mannleg samvera býr til félagslega töfra, skjáir takmarka þá.

Scroll to Top