Nýja bókin að koma út!

Nýja bókin að koma út!

Það er við hæfi að nýja bókin mín, “How Digital Screen Use Alienates Human Societies: A treatise on social magic and its decadence”, komi út nú í viku einmanaleikans. Bókin fjallar um neikvæð áhrif skjábyltingarinnar og varpar ljósi á þá þversögn að fjölbreyttari og víðtækari samskiptahættir hafa stuðlað að auknu samskiptaleysi og firringu.

Í bókinni er víða leitað fanga til að varpa ljósi á viðfangsefnið, þó aðallega út frá félagsfræðilegu sjónarhorni, en ég styðst einnig við rannsóknir og kenningar úr sálfræði, heimspeki, efnafræði og taugavísindum – svo dæmi séu tekin. Bókin beinir til dæmis sjónum að breyttum samskiptavenjum, takmörkunum skjásamskipta samanborið við bein samskipti, sem og hvernig hinn kapítalíski tækniiðnaður hefur hrifsað til sín og peningavætt mannleg samskipti á kostnað almannaheilla. Meðal annars koma töfrabrögð, nostalgía, gervigreind og sjötta skilningarvitið við sögu, sem og persónur eins og Mark Zuckerberg, Oprah Winfrey, Haruki Murakami, og íslenski hringfarinn.

Bókin, sem gefin er út af Routledge, er nú þegar farin að vekja athygli í erlendum netmiðlum.

Sjá til dæmis:

https://www.news-medical.net/news/20260928/New-book-examines-how-digital-screens-cause-social-disconnection.aspx

https://www.nationalgeographic.nl/wetenschap/a73886643/gevolgen-schermgebruik-volgens-socioloog-vidar-halldorsson

https://nautil.us/where-did-the-social-magic-go-1285451

https://www.nacionale.com/en/articles/icelandic-sociologist-vidar-halldorsson-screens-causing-loss-social-magic

Formleg útgáfa bókarinnar er 6. október en útgáfuhóf verður haldið í Háskóla Íslands föstudaginn 16. október. 

Meira síðar.

Scroll to Top