Ungmennafélag Íslands stendur fyrir þriggja daga ráðstefnu fyrir ungt fólk í september. Ráðstefnan hefur það að markmiði að hvetja ungt fólk til þátttöku og athafna í samfélaginu. Það er gaman að segja frá því að yfirskrift ráðstefnunnar er “Félagslegir töfrar”. Ég fæ því að vera með. Hlakka mikið til að miðla, læra, skapa og njóta félagslegra töfra með unga fólkinu. Meira síðar…