Karlarnir sem koma saman til skrafs og ráðagerða og virða fyrir sér mannlífið í almannarýminu – sem stundum er nefnt þriðja rýmið – eru að taka þátt í því sem mætti kalla félagslegar siðvenjur (e. rituals). Suður-kóreski heimspekingurinn Byung-Chul Han hefur áhyggjur af því að þessar hversdaglegu félagslegu siðvenjur þar sem fólk á í samskiptum við aðra í sínu nærumhverfi séu á undanhaldi. Hann talar fyrir mikilvægi slíkra samskipta þar sem þær gefa hversdagslífinu merkingu og heilaga ásýnd og veita einstaklingum tilfinningu fyrir að tilheyra samfélaginu. “Rituals are symbolic practices…in the sense that they bring people together and create an alliance, a wholeness, a community“ segir Han. Það er því mikilvægt að fólk komi saman, hvort sem er í fjölskyldum sem eiga sameiginlegar máltíðir, nágrannar hittist í heitu pottunum í hverfislauginni, eða vinnufélagar taki spjall við kaffivélina, þrátt fyrir að sú tæknilega skynsemishyggja sem ríður yfir samfélagið haldi öðru fram.