Ég var fenginn til að vera með smá tölu um gildi íþróttastarfs á fundi Íþróttabandalags Reykjavíkur. Efni fundarins snérist um inngildingu innflytjenda í gegnum þátttöku í íþróttastarfi í Breiðholti. Fundurinn var mjög góður og áhugaverður. Ég átti samtal við fjölda fólks frá ýmsum þjóðlöndum og menningarheimum sem var bæði gefandi og upplýsandi. Verkefnið er þó krefjandi og það þarf að leita leiða í gegnum samtal og samvinnu. Meðfylgjandi mynd sýnir frá því þegar ég er að segja frá hugmyndum Émile Durkheim um mikilvægi inngildingar og reglusetningar (integration og regulation). Áfram veginn.
Mynd: Bjarni Baldursson fyrir ÍBR