Ljósmyndir geta sagt meira en mörg orð. Meðfylgjandi mynd er tekin er í Chicago í Bandaríkjunum í mars árið 2025. Á henni má sjá háhýsi, bandaríska fánann, lögreglumann, og fólk á flandri. Greinandi túlkun myndarinnar, með tillitil til þess hvenær hún var tekin, er öllu átakanlegri. Þannig sýnir myndin hvernig Donald Trump forseti Bandaríkjanna ríkir yfir samfélaginu undir þeim formerkjum að hann hafi hagsmuni Bandaríkjanna í fyrirrúmi. Trump breytir lögum og reglum sér í hag – og vilja sumir halda því fram að hann sé að grafa undan lýðræðinu og færa Bandaríkin í átt að einræðisstjórnun – og nýtir sér meðal annars lögregluna til að framfylgja einræðistilburðum sínum. Almenningur er því kominn undir nokkurs konar ægivald forsetans og hvorki getur né kærir sig um að standa gegn einræðistilburðum hans. Lögreglumaðurinn á myndinni gætir þess að almenningur hegði sér sem skildi þar sem hann horfir yfir mannfjöldann og er tilbúinn að grípa inn í ef þarf. Skilaboðin “Happy Go Lucky” á bol unga mannsins lengst til vinstri á myndinni – sem nb. endurspeglar stærsta stuðninghóp forsetans, unga hvíta karlmenn – eru svo til merkis um að almenningur spilar með og lætur sér fátt um finnast þó lýðræðinu sé ógnað. En það eru einmitt kjöraðstæður fyrir uppgang fasískra stjórnunarhátta.